A kvartaði yfir úrskurði úrskurðarnefndar á vegum skráningarstofu léna.
Þar sem starfssvið umboðsmanns nær ekki til skráningarstofunnar, þar með talið úrskurðarnefndar á hennar vegum, voru ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um kvörtunina.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 14. september 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar 5. ágúst sl. en hún beinist að úrskurðarnefnd ISNIC og lýtur að úrskurði hennar 21. júlí sl. þess efnis að umskrá beri tilgreint lén en samkvæmt skráningu þess ert þú rétthafi lénsins. Sá ágreiningur, sem ráðið var til lykta með fyrrgreindum úrskurði, laut að því hvort félag, sem selur vörur undir tilgreindu vörumerki, ætti að fá umskráð á sig hið umrædda lén enda vísaði lénið til fyrrgreinds vörumerkis félagsins.
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur starfssvið umboðsmanns til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga auk starfsemi einkaaðila að því leyti sem þeim hefur að lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Önnur starfsemi einkaaðila fellur hins vegar ekki undir starfssvið umboðsmanns eins og það er markað í lögum nr. 85/1997.
Úrskurðarnefndin, sem kvað upp úrskurð í máli þínu, er starfrækt á vegum skráningarstofunnar Internet á Íslandi hf. (ISNIC), sbr. 8. kafla reglna ISNIC um lénaskráningu, en skráningarstofum er skylt að starfrækja slíka nefnd sem skeri úr deilum um lén á grundvelli reglna skráningarstofunnar, sbr. i.-lið 2. mgr. 8. gr. laga nr. 54/2021, um íslensk landshöfuðlén. Félagið Internet á Íslandi hf., sem starfrækir úrskurðarnefndina samkvæmt framangreindu, starfar á einkaréttarlegum grundvelli. Er félagið hlutafélag og starfar sem slíkt á grundvelli laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Heyrir félagið og þar með úrskurðarnefnd á þess vegum þar með ekki til stjórnsýslu ríkis eða veitarfélaga og gæti því aðeins fallið undir starfssvið umboðsmanns Alþingis að því leyti sem því hefði að lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. áðurnefnd 3. gr. laga nr. 85/1997.
Samkvæmt fyrrnefndum lögum nr. 54/2021 starfa skráningarstofur við daglega umsjón landshöfuðléns eða léna og skulu gegna skyldum sínum á öruggan og skilvirkan hátt í þágu almannahagsmuna. Um heimild til að starfrækja slíka skráningarstofu fer samkvæmt fyrirmælum 6. gr. laga nr. 54/2021. Setur slík skráningarstofa reglur um lénaskráningar skv. 9. gr. laganna og framfylgir þeim reglum, sbr. g.-lið 2. mgr. 8. gr. laganna, en úrskurðarnefnd skráningarstofu sker úr um deilum á grundvelli umræddra reglna, sbr. áðurnefndan i.-lið sömu málsgreinar.
Eftir að hafa kynnt mér starfsemi Internets á Íslandi hf. (ISNIC) og ákvæði laga nr. 54/2021 verður ekki séð að skráning og eftir atvikum umskráning léna feli í sér beitingu opinbers valds í framangreindri merkingu 3. gr. laga nr. 85/1997. Á það við enda þótt um þessa starfsemi gildi áðurnefnd lög. Í samræmi við þetta hefur Fjarskiptastofu, sem er stjórnvald, verið falið eftirlit með því að starfsemi skráningarstofu, og þar með væntanlega jafnframt úrskurðarnefndar á vegum slíkrar stofu, uppfylli skilyrði laga nr. 54/2021, sbr. 13. gr. laganna. Ég tel því einnig rétt að vekja athygli þína á því að þér kann að vera unnt að kvarta til Fjarskiptastofu teljir þú að meðferð máls þíns hafi ekki verið hagað í samræmi við ákvæði laga nr. 54/2021.
Þar sem kvörtun þín lýtur að atriðum, sem falla utan starfssviðs míns samkvæmt framangreindu, er umfjöllun minni um kvörtun þín lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.