A kvartaði yfir töfum á afgreiðslu innviðaráðuneytisins á kæru vegna úthlutunar Byggðastofnunar á aflamarki og skorti á svörum frá ráðuneytinu við fyrirspurnum um afgreiðslu málsins.
Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn umboðsmanns kom fram að sama dag og svarbréfið var ritað hefði verið úrskurðað í málinu og A tilkynnt um það. Því taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. september 2026.
Vísað er til kvörtunar þinnar frá 21. ágúst 2026 sem beinist að innviðaráðuneyti og lýtur að töfum á afgreiðslu kæru vegna úthlutunar Byggðastofnunar á aflamarki og skorti á svörum frá ráðuneytinu við fyrirspurnum um afgreiðslu málsins. Þú hafðir áður leitað til mín af sama tilefni (mál nr. 562/2025 og 265/2026) en í ljósi svara sem mér bárust þá við fyrirpurnum um framvindu málsins taldi ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar að svo stöddu.
Í tilefni af kvörtuninni var innviðaráðuneytinu ritað bréf 7. september sl. þar sem spurt var hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins. Einnig var óskað upplýsinga um samskipti ráðuneytisins við þig, svo sem hvort ráðuneytið hefði tilkynnt um fyrirsjáanlegar tafir, ástæður þeirra og hvenær ákvörðunar mætti vænta, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 37/1993.
Í svari innviðaráðuneytisins frá 21. september sl. kemur fram að fyrri áform um afgreiðslu málsins hafi ekki gengið eftir vegna þess að í ljós hafi komið að afla þyrfti frekari upplýsinga frá Byggðastofnun en láðst hafi að upplýsa þig um tafirnar. Einnig er í svari ráðuneytisins greint frá samskiptum við þig um málið nú í september og að þér hafi sama dag og svarbréfið var ritað verið tilkynnt um uppkvaðningu úrskurðar í því.
Þar sem kvörtunin lýtur að töfum á málsmeðferð sem er að nú lokið, tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni. Með hliðsjón af framangreindu lýk ég meðferð minni á málinu, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.