Fangelsismál. Aðbúnaður í fangelsi. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 608/2026)

A kvartaði yfir aðbúnaði í fangelsi, nánar tiltekið að A hafi ekki verið úthlutað fangaklefa í fangelsinu. Kvörtunin laut einnig að því að Fangelsismálastofnun hafi ekki svarað erindum vegna málefna A.

Þar sem ekki varð séð að A hefði leitað til dómsmálaráðuneytisins með athugasemdir sínar gat umboðsmaður ekki tekið kvörtunina til nánari umfjöllunar að svo stöddu.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 13. október 2026.

  

  

Vísað er til kvörtunar A 6. október sl. sem lýtur að aðbúnaði hennar í Fangelsinu Hómsheiði, nánar tiltekið að henni hafi, frá upphafi afplánunar sinnar [...] sl., ekki verið úthlutað fangaklefa í fangelsinu heldur hafi hún verið vistuð í myndavélaklefa og/eða einangrunarklefa. Kvörtunin lýtur einnig að því að Fangelsismálastofnun hafi ekki svarað erindum sem þú sendir stofnuninni fyrir hönd A vegna málefna hennar. Það hafi leitt til þess að A hafi ekki fengið formlega afstöðu Fangelsismálastofnunar í málum sínum og því ekki getað nýtt sér kæruheimild til dómsmálaráðuneytisins.

Í tilefni af kvörtun A og með vísan til þess sem þú varst upplýstur um í samtali við starfsmann embættisins í síma föstudaginn 9. október sl. vil ég benda á að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er gert ráð fyrir að umboðsmaður hafi ekki afskipti af máli fyrr en stjórnvöld, þar með talið æðra stjórnvald, hafi lokið umfjöllun sinni um málið. Af því leiðir meðal annars að almennt verður mál ekki tekið til með­ferðar af hálfu umboðsmanns á grundvelli kvörtunar fyrr en það hefur verið endanlega til lykta leitt í stjórnsýslunni. Að baki þessu skilyrði búa sjónarmið um að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir eða annað í störfum sínum, sem hugsanlega er ekki í samræmi við lög, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra, eins og umboðsmann Alþingis, með kvartanir.

Ástæða þess að ég bendi á framangreint er sú að til viðbótar við að ákvarðanir á grundvelli laga nr. 15/2016, um fullnustu refsinga, séu kæranlegar til dómsmálaráðuneytisins, sbr. 1. mgr. 95. gr. laganna, þá fer dómsmálaráðherra með yfirstjórn fangelsismála, sbr. 4. gr. þeirra, og hefur þannig vissar yfirstjórnar- og eftirlitsheimildir gagnvart Fangelsismálastofnun og þá meðal annars í tengslum við þau réttindi sem fangar njóta á grundvelli laganna og takmarkana á þeim.

Samkvæmt kvörtuninni og þeim upplýsingum sem komu fram í tilvitnuðu samtali við starfsmann embættisins hafa málefni A ekki verið borin undir dómsmálaráðuneytið. Með vísan til framanrakinna sjónarmiða tel ég rétt að þess sé freistað að leita afstöðu ráðuneytisins áður en kvartað er af sama tilefni til umboðsmanns Alþingis. Með þessu hef ég þó enga afstöðu tekið til þess hver viðbrögð þess við erindinu ættu að vera. Fari A þá leið og sé ósátt við viðbrögð ráðuneytisins, eða skort á þeim, getur hún leitað til mín á nýjan leik og verður þá tekin afstaða til þess hvort, og þá að hvaða marki, málið getur komið til athugunar af minni hálfu.

Loks tek ég fram að umboðsmaður Alþingis fer með svokallað OPCAT-eftirlit sem felst í reglubundnum heimsóknum á staði þar sem einstaklingar eru eða kunna að vera sviptir frelsi sínu, sbr. 2. mgr. 2. gr. laga nr. 85/1997. Við eftirlitið verður höfð hliðsjón af þeim athugasemdum sem felast í kvörtun A, meðal annars við yfirstandandi vinnu við skýrslu um heildarúttekt á Fangelsinu Hólmsheiði.

Með vísan til framangreinds lýk ég meðferð minni á kvörtuninni, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.