A kvartaði yfir töfum á meðferð Útlendingastofnunar á umsókn hans svo og tilgreindum atriðum við efnislega meðferð málsins.
Að því leyti, sem kvörtunin laut að efnislegri meðferð málsins, taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til að kvörtunin yrði tekin til meðferðar enda afgreiðslu málsins ólokið.
Með vísan til þess að ekki varð séð að A hefði sjálfur spurst fyrir um hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins svo og að því gættu að vísbendingar voru um að málsmeðferðartíminn væri ekki einskorðaður við mál A taldi umboðsmaður ekki nægilegt tilefni til frekari athugunar á þeim þætti kvörtunarinnar.
Umboðsmaður upplýsti A um að kvörtun hans og fleiri af sama toga hefðu orðið umboðsmanni tilefni til að taka málshraða við meðferð mála hjá Útlendingastofnun til almennrar athugunar að eigin frumkvæði.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. október 2026.