Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Skýringar fengnar.

(Mál nr. 511/2026)

A ehf. kvartaði yfir skorti á viðbrögðum áfrýjunarnefndar neytendamála við kæru félagsins.

Í svari áfrýjunarnefndar neytendamála við fyrirspurn umboðsmanns kom fram að fyrirsvarsmanni félagsins hefði verið svarað og kæran tekin til meðferðar. Taldi umboðsmaður því ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. október 2026.