Skattar og gjöld. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 548/2026)

A kvartaði yfir því að hún þyrfti að greiða kílómetragjald vegna bifreiðar í hennar eigu sem væri stödd á erlendri grundu.

Þar sem A hafði beint kæru til yfirskattnefndar og málið var þar til meðferðar taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til að kvörtunin yrði tekin til frekari meðferðar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. október 2026.