Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu mála. Kæruleið ekki tæmd.

(Mál nr. 530/2026)

A ehf. kvartaði yfir málsmeðferð sýslumannsins á Vestfjörðum í tengslum við mál er varðar merki fasteigna.

Þar sem félagið hefði beint stjórnsýslukæru vegna þessa til dómsmálaráðuneytisins, sem væri enn til meðferðar þar, taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til að fjalla frekar um kvörtunina að því leyti er hún varðaði efnislegar athugasemdir við málsmeðferð sýslumanns.

Hvað varðaði tafir á svörum ráðuneytisins við fyrirspurn félagsins varð ekki ráðið að fyrirspurnin hefði verið ítrekuð. Með vísan til þess taldi umboðsmaður ekki tilefni til frekari athugunar á þeim hluta kvörtunarinnar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. október 2026.