Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Skýringar fengnar. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 466/2026)

A kvartaði yfir töfum hjá Sjúkratryggingum á afgreiðslu umsóknar um bætur úr sjúklingatryggingu.

Í svari Sjúkratrygginga við fyrirspurn umboðsmanns um málið kom fram að tafir hefðu orðið á gagnaöflun en henni væri nú lokið og útlit væri fyrir að málið yrði afgreitt innan tíðar. Í ljósi þeirra upplýsinga taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 30. október 2026.