Félagið A kvartaði yfir skorti á svörum við erindum til heilbrigðisráðuneytisins.
Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn umboðsmanns um málið var gerð grein fyrir samskiptum við A og í framhaldinu upplýst að A hefði verið svarað. Því taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 4. nóvember 2026.