A beindi erindi til umboðsmanns í tengslum við synjun Sjúkratrygginga á umsókn B, barnabarns A, um bætur úr sjúklingatryggingu vegna mistaka við læknismeðferð erlendis.
Þar sem það er ekki hlutverk umboðsmanns að veita lögfræðilegar álitsgerðir eða svara almennum spurningum um tiltekin málefni eða réttarsvið, svo og að ekki lá fyrir úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála um ákvörðun Sjúkratrygginga, voru ekki skilyrði til að hún fjallaði um erindið.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 4. nóvember 2026.