Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Erlendir ríkisborgarar. Ekki ástæða til aðgerða.

(Mál nr. 669/2026)

Kvartað var yfir töfum Útlendingastofnunar á afgreiðslu umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt, en rekja mátti tafirnar til þess að beðið væri niðurstöðu  lögreglu um áreiðanleika á gögnum.

Af hálfu umboðsmanns var vísað til þess að í sambærilegum málum hefði komið í ljós að tafirnar væru af almennum toga en ekki bundnar við einstök mál. Því taldi umboðsmaður ekki tilefni til að taka kvörtunina til frekari athugunar.  Í því sambandi vísaði  umboðsmaður til þess að hún hefði þegar ákveðið að taka til athugunar að eigin frumkvæði annars vegar tafir við áreiðanleikakannanir hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum og hins vegar almennar tafir sem væru á afgreiðslutíma mála  hjá Útlendingastofnun.  

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 12. nóvember  2026.