Skipun lögráðamanna. Ekki aðild.

(Mál nr. 626/2026)

A kvartaði yfir verklagi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu við val lögráðamanna.

Þar sem ekki varð séð að kvörtunin lyti að einstaklingsbundnum hagsmunum eða réttindum A umfram aðra taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði til þess að erindi A yrði tekið til meðferðar á grundvelli kvörtunarinnar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 12. nóvember 2026.