Almannatryggingar.

(Mál nr. 11956/2022)

Kvartað var yfir málsmeðferð Tryggingastofnunar.  

Þar sem ákvörðun stofnunarinnar hafði verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála en niðurstaða hennar lá ekki fyrir voru ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um kvörtunina að svo stöddu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 16. desember 2022.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 9. desember sl. þar sem þér gerið athugasemdir við málsmeðferð Tryggingastofnunar í máli yðar. Af kvörtuninni verður ráðið að athugasemdirnar lúti að ákvörðun stofnunarinnar um greiðslu örorkulífeyris. Samkvæmt kvörtuninni hafið þér kært ákvörðunina til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Í tilefni af kvörtun yðar tek ég fram að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er gert ráð fyrir að umboðsmaður hafi ekki afskipti af máli fyrr en stjórnvöld, þar með talið æðra stjórnvald þegar það á við, hafa lokið umfjöllun sinni um málið. Af kvörtun yðar er ljóst að þér hafið kært ákvörðun Tryggingastofnunar til úrskurðarnefndar velferðarmála í samræmi við 13. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar. Ekki verður annað ráðið en að málið sé enn til meðferðar hjá nefndinni.

Brestur af þessum sökum lagaskilyrði til þess að kvörtun yðar verði tekin til meðferðar að svo stöddu og lýk ég því umfjöllun minni um hana, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997. Ef þér teljið yður enn beitta rangsleitni að fenginni niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála getið þér leitað til mín á nýjan leik með kvörtun þar að lútandi.