Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Grunnskólar. Einelti.

(Mál nr. 12085/2023)

Kvartað var yfir því að mennta- og barnamálaráðuneytið hefði ekki afgreitt kvörtun vegna eineltismála sem innviðaráðuneytið hefði framsent því. 

Í kjölfar eftirgrennslan umboðsmanns var erindinu svarað og því ekki ástæða til að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 27. mars 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 7. mars sl. yfir því að mennta- og barnamálaráðuneytið hafi enn ekki afgreitt kvörtun yðar, sem innviðaráðuneytið framsendi ráðuneytinu og lýtur að málsmeðferð eineltismála af hálfu sveitarfélagsins X.

Í tilefni af kvörtuninni var mennta- og barnmálaráðuneytinu ritað bréf 10. mars sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvað liði meðferð og afgreiðslu kvörtunar yðar. Nú hefur borist svarbréf frá ráðuneytinu 24. mars sl. þar sem fram kemur að erindi yðar hafi verið svarað með bréfi dags. sama dag og ráðuneytið því lokið afgreiðslu á máli yðar.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að töfum á afgreiðslu máls og í ljósi þess að ráðuneytið hefur nú lokið afgreiðslu máls yðar tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni.

Lýk ég því meðferð minni á henni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.