Útlendingar.

(Mál nr. 12180/2023)

Gerðar voru athugasemdir við upphæð framfærslustyrkja til umsækjenda um alþjóðlega vernd samanborið við upphæð greiðslna Tryggingastofnunar.  

Af kvörtuninni varð ekki ráðið að hún beindist að tiltekinni ákvörðun eða athöfn stjórnvalds sem snerti hagsmuni viðkomandi umfram aðra. Ekki voru því skilyrði til að umboðsmaður fjallaði frekar um hana.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 22. maí 2023.

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 8. maí sl. þar sem þér komið á framfæri athugasemdum við upphæð framfærslustyrkja til umsækjenda um alþjóðlega vernd samanborið við upphæð greiðslna Tryggingastofnunar ríkisins til yðar.

Um störf umboðsmanns Alþingis gilda samnefnd lög nr. 85/1997. Samkvæmt 2. gr. laganna er hlutverk hans að hafa eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á þann hátt, sem nánar greinir í lögunum, og að tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laganna getur hver sá sem telur sig hafa verið beittan rangsleitni af hálfu stjórnvalds kvartað af því tilefni til umboðsmanns Alþingis. Í þessu ákvæði felst að kvörtun til umboðsmanns verður að lúta að tilteknum athöfnum eða ákvörðunum stjórnvalda sem beinast sérstaklega að þeim sem leggur fram kvörtun eða snerta beinlínis hagsmuni hans eða réttindi. Það er hins vegar ekki hlutverk umboðsmanns að láta fólki í té almennar álitsgerðir eða svara almennum lögspurningum.

Af kvörtun yðar verður ekki ráðið að hún beinist að tiltekinni ákvörðun eða athöfn stjórnvalds sem snertir hagsmuni yðar umfram aðra. Brestur því lagaskilyrði til að hún verði tekin til frekari meðferðar.

Með hliðsjón af framangreindu lýk ég athugun minni á kvörtun yðar með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.