Vopn.

(Mál nr. F125/2023)

Umboðsmaður óskaði eftir upplýsingum og skýringum frá dómsmálaráðherra á breytingum á reglum um valdbeitingu lögreglumanna og meðferð og notkun valdbeitingartækja og vopna sem gjarnan hefur verið vísað til sem rafbyssa. Í framhaldi af svari dómsmálaráðherra var óskað eftir upplýsingum frá forsætisráðherra um tiltekin atriði.  

Umboðsmaður minnti á að reglur stjórnarskrár og laga um Stjórnarráð Íslands miði að því að tryggja viðhlítandi samstarf og samvinnu milli ráðherra þannig að ríkisstjórn starfi samhent að stefnumálum sínum. Láti ráðherra farast fyrir að virða þessar reglur feli það ekki eingöngu í sér brot á formreglu heldur stuðli slík háttsemi að því að það pólitíska samráð, sem lög og stjórnarskrá mæli fyrir um að fram skuli fara á vettvangi ríkisstjórnar, sé sniðgengið. Í þessu samhengi sé það jafnan í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti að ráðherra nýti eftir föngum vettvang ríkisstjórnar til samráðs við aðra ráðherra og til að jafna hugsanlegan ágreining. Slík vinnubrögð hljóti einnig að vera til þess fallin að ráðherrar skiptist síður á skoðunum á opinberum vettvangi og ríkisstjórn birtist borgurunum sem samhentur hópur stjórnenda. Þetta hafi því þýðingu fyrir það traust sem almenningur eigi að geta borið til þess að æðsta stjórn landsins vinni mál og afgreiði af fagmennsku og yfirvegun. Í ljósi þeirra aðstæðna sem uppi voru í málinu verði ekki betur séð en að framganga dómsmálaráðherra hafi verið ósamrýmanleg kröfum um vandaða stjórnsýsluhætti. Er í því sambandi einkum horft til þess að forsætisráðherra hafði látið í ljós ósk sína um að málið yrði rætt á fundi ríkisstjórnar.  

Þá lýsti umboðsmaður sig ósammála þeirri skoðun forsætisráðherra að vandséð væri að ekki yrði lengra gengið í sérstöku verklagi viðvíkjandi því hvort og hvernig mál ráðherra væru borin upp í ríkisstjórn. Í starfsreglum ríkisstjórnar mætti t.d. kveða með skýrari hætti á um skyldur ráðherra að þessu leyti. Að lokum benti umboðsmaður á að í núgildandi siðareglum fyrir ráðherra er ekkert fjallað um siðferðilegar skyldur ráðherra m.t.t. samvinnu og samskipta þeirra sín á milli, hvort heldur sem er innan eða utan ríkisstjórnarfunda.

   

Lauk umboðsmaður málinu með bréfi til forsætisráðherra 13. mars 2023.