Fjármála- og tryggingastarfsemi. Starfssvið umboðsmanns Alþingis.

(Mál nr. 12233/2023)

Kvartað var yfir synjun á endurfjármögnun íbúðarláns.  

Þar sem kvörtunin laut að starfsemi einkaaðila féll það ekki undir starfssvið umboðsmanns að fjalla um hana.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 21. júní 2023.

  

   

Vísað er til erindis yðar frá 8. júní sl. þar sem gerðar eru athugasemdir við synjun á endurfjármögnun íbúðarláns. Samkvæmt kvörtuninni beinist hún að Landsbankanum og öðrum bönkum.

Í tilefni af erindi yðar tek ég fram að samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er það hlutverk umboðsmanns Alþingis að hafa eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga og tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Samkvæmt 1. og 2. mgr. 3. gr. sömu laga nær starfssvið umboðsmanns einvörðungu til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Starfssvið umboðs­manns tekur hins vegar almennt ekki til einkaaðila, nema við­komandi einka­aðila hafi að lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 85/1997.

Ástæða þess að ég bendi yður á þetta er sú að Landsbankinn hf. er fjár­málafyrirtæki sem starfar á grundvelli laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki og laga nr. 2/1995, um hlutafélög, og teljast því einkaréttarlegir aðilar. Þar sem kvörtun yðar beinist að starfsemi einkaaðila, og í ljósi framangreindra lagareglna um starfssvið umboðsmanns Alþingis, brestur lagaskilyrði til að ég taki kvörtun yðar til frekari meðferðar.

Lýk ég því athugun minni á kvörtun yðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.