Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Félagsþjónusta og félagsleg aðstoð. Húsnæðismál.

(Mál nr. 12316/2023)

Kvartað var yfir því að Reykjavíkurborg hefði ekki afgreitt umsókn um félagslegt húsnæði. 

Af svörum Reykjavíkurborgar til umboðsmanns varð ráðið að málið væri í farvegi þótt ekki kæmi skýrt fram hvenær gert væri ráð fyrir að því lyki. Umboðsmaður taldi því ekki ástæðu til að aðhafast að svo stöddu þar sem tafir innan málaflokksins virtust almennar en ekki bundnar við þetta mál sérstaklega.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 7. september 2023.

  

   

Vísað er til kvörtunar yðar til umboðsmanns Alþingis 31. júlí sl. yfir því að Reykjavíkurborg hafi enn ekki afgreitt umsókn yðar um félagslegt húsnæði hjá Reykjavíkurborg.

Í tilefni af kvörtun yðar var Reykjavíkurborg ritað bréf 11. ágúst sl. þar sem óskað var eftir upplýsingum um í hvaða farvegi mál yðar væri hjá sveitarfélaginu. Svar Reykjavíkurborgar barst 24. ágúst sl. en þar kemur fram að þér sóttuð um almennt félagslegt leiguhúsnæði 8. september 2021. Var umsókn yðar metin til 12 stiga samkvæmt matsviðmiðum Reykjavíkurborgar vegna úthlutunar félagslegs leiguhúsnæði en samkvæmt reglum þurfi umsókn að vera metin til að minnsta kosti tíu stiga til að vera samþykkt á biðlista og umsókn yðar sé því á biðlista. Þá segir í bréfinu að í lok júlí 2023 hafi fjöldi umsókna á biðlista eftir eins til tveggja herbergja íbúð verið alls 513 og meðalbiðtími eftir úthlutun sé 21 mánuður. Að lokum er tekið fram að ljóst sé að umsókn yðar hafi verið tæpa 24 mánuði á biðlista en miðað við meðalbiðtíma umsókna megi ætla að það komi að úthlutun til yðar fljótlega.

Ég tek fram að þótt ekki komi skýrt fram í svörum Reykjavíkurborgar hvenær nákvæmlega sé gert ráð fyrir að máli yðar ljúki og af úthlutun verði verður ekki betur séð en að það sé í farvegi hjá sveitarfélaginu. Í ljósi þess og þeirra skýringa sem ég hef fengið fyrir þeirri stöðu sem uppi er hvað varðar málshraða tel ég ekki ástæðu til að aðhafast sérstaklega í máli yðar að svo stöddu en ekki liggur annað fyrir en að tafir innan málaflokksins séu almennar og ekki bundnar við mál yðar sérstaklega. Hef ég því ákveðið að ljúka meðferð minni á kvörtun yðar með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Vegna kvörtunar yðar og þeirrar stöðu sem uppi er í máli yðar tel ég rétt að benda yður á að samkvæmt 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er heimilt að kæra óhæfilegar tafir á afgreiðslu máls til þess stjórnvalds, sem ákvörðun í málinu verður kærð til. Í ljósi þessa bendi ég yður á að samkvæmt að samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, er heimilt að kæra stjórnvalds­ákvarðanir teknar samkvæmt þeim lögum til úrskurðarnefndar velferðarmála. Ef þér teljið sérstakt tilefni til getið þér getið því freistað þess að kæra tafir á málsmeðferð Reykjavíkurborgar til úrskurðarnefndar velferðar-mála. Teljið þér yður enn beittan rangsleitni að fenginni niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála, getið þér leitað til umboðsmanns á nýjan leik með kvörtun þar að lútandi.

Með vísan til framangreinds læt ég athugun minni á máli þessu lokið.