Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Sveitarfélög. Hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit. Persónuréttindi. Hjúkrunarheimili.

(Mál nr. 12345/2023)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu sveitarfélagsins Y á erindi.  

Í kjölfar eftirgrennslan umboðsmanns var erindinu svarað og því ekki ástæða til að aðhafast frekar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 28. september 2023.

   

   

Vísað er til kvörtunar yðar 29. ágúst sl. vegna tafa á afgreiðslu [sveitarfélagsins Y] á erindi yðar til sveitarfélagsins 10. maí sl. Var tilefni þess almennt reykingabann á hjúkrunar- og dvalarheimilinu [X] þar sem þér eruð íbúi.

Í tilefni af kvörtuninni var Skaftárhreppi ritað bréf 6. september sl. og þess óskað að sveitarfélagið upplýsti umboðsmann um hvað liði meðferð og afgreiðslu erindisins. Í tölvubréfi til umboðsmanns 26. september sl. kom fram að hjúkrunarforstjóri X hafi svarað erindi yðar með tölvubréfi til yðar sama dag. Afrit af svari forstjórans til yðar hefur jafnframt borist umboðsmanni.

Þar sem kvörtunin lýtur að töfum á afgreiðslu á erindi yðar til sveitarfélagsins og nú liggur fyrir að því hefur verið svarað tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtun yðar. Lýk ég því meðferð minni á kvörtuninni með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingi.