11. ágúst 2022

Lögreglustjóri beðinn um skýringar á takmörkuðu aðgengi barna að gosstöðvum

Umboðsmaður hefur óskað eftir upplýsingum og skýringum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum á ákvörðun um að takmarka aðgengi barna að gosstöðvunum í Meradölum.

  

  1. Óskað er upplýsinga um hvort og þá hvenær þessi ákvörðun lögreglustjóra hafi tekið gildi og hvort henni hafi verið markaður sérstakur gildistími. 
  1. Þess er óskað að lögreglustjóri skýri nánar á hvaða lagagrundvelli umrædd ákvörðun er reist og veiti jafnframt upplýsingar um það hvaða gögn, upplýsingar eða röksemdir hafi legið til grundvallar því mati lögreglustjóra að takmarka aðgengi barna yngri en 12 ára að svæðinu. 
  1. Hvort og þá með hvaða hætti lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi kynnt almenningi ákvörðun sína eða hyggist gera slíkt.

  

Óskað er eftir svörum innan viku.

  

  

Bréf umboðsmanns til lögreglustjórans á Suðurnesjum