Í tilefni af umfjöllun í fréttum um að fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa hefði verið tekin út af vefsíðu Reykjavíkurborgar, henni breytt og hún birt á ný hefur umboðsmaður óskað eftir tilteknum upplýsingum og skýringum frá Reykjavíkurborg.
Beinist upplýsingaöflun umboðsmanns að því hvort fundargerðin hafi verið tekin út af vefsíðunni og sett inn á nýjan leik með breyttri umsögn skipulagsfulltrúa og þá hvor útgáfa þessarar umsagnar hafi verið samþykkt á fundi. Hafi umsögninni verið breytt eftir að fundargerðin var birt er óskað upplýsinga um hvaða breytingar hafi verið gerðar, hvers vegna og á hvaða grundvelli. Hafi breytingar verið gerðar á fundargerðinni er óskað upplýsinga um hvort sú framkvæmd tíðkist almennt við birtingu fundargerða hjá Reykjavíkurborg og þá við hvaða aðstæður. Jafnframt er óskað upplýsinga um síðustu fimm tilvik þar sem fundargerðum var breytt, tíðkist slíkar breytingar á annað borð. Að fengnum þessum skýringum Reykjavíkurborgar mun umboðsmaður ákveða hvort málið verði tekið til frekari athugunar. Óskað er svara eigi síðar en 26. júní nk.
Bréf umboðsmanns til Reykjavíkurborgar