Í tilefni kvörtunar sem laut að löngum málsmeðferðartíma Útlendingastofnunar vegna afgreiðslu umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt og upplýsinga sem komu fram á vef stofnunarinnar á sama veg er umboðsmaður með það til skoðunar hvort taka beri málsmeðferðartímann í þessum málum til skoðunar að eigin frumkvæði.
Umboðsmaður hefur áður haft afgreiðslutíma umsókna um ríkisborgararétt til athugunar en taldi ekki ástæðu til að aðhafast frekar, að svo stöddu, í kjölfar þess að verklagi var breytt sem þýddi að málsmeðferðartíminn styttist úr 16 mánuðum í sex. Þar sem vísbendingar eru um að málsmeðferðartíminn kunni nú að vera að minnsta kosti eitt og hálft ár er því óskað eftir að Útlendingastofnun greini frá ástæðum þess að málsmeðferðartíminn virðist vera kominn í fyrra horf. Þá er óskað skýringa á því hvernig það samræmist málshraðareglum stjórnsýsluréttar að umsóknir um ríkisborgararétt sem stofnuninni hafa borist frá desember 2023 hafi enn sem komið er ekki verið teknar til vinnslu.
Bréf umboðsmanns til Útlendingastofnunar