Aðbúnaður og umsjón með fólki sem vistað er í fangageymslu lögreglunnar á Hverfisgötu í Reykjavík er ekki viðunandi að mati umboðsmanns. Meðal annars virðast tæknilegir annmarkar vera á eftirliti, vistaðir komast ekki alltaf á salerni að eigin ósk og stundum með þeim afleiðingum að þeir neyðast til að gera þarfir sínar í klefa. Þá eru klefarnir ekki endilega þrifnir strax í kjölfarið.
Athugun umboðsmanns á starfseminni í fangageymslunni var gerð yfir helgarnótt í október og tók til verklags og starfshátta við vistun fólks í fangaklefum þar. Jafnframt voru skoðuð myndbönd úr fangageymslunni með áherslu á þessi atriði. Þetta er liður í OPCAT-eftirliti umboðsmanns með stöðum þar sem frelsissviptir dvelja.
Lögregla ber ábyrgð á að gæta öryggis einstaklinga sem vistaðir eru í fangageymslu og að sjá til þess að umsjón þeirra sé í samræmi við lög og verklagsreglur. Ekki varð betur séð við eftirlitið en dæmi væru um að fólki væri ekki sinnt eftir að það hringdi bjöllu í klefa, svo sem til að fá að fara á salerni, og hefði í kjölfarið gert þarfir sínar þar inni. Mælst er til að gerð verði bragarbót á þessu sem og að klefar verði þrifnir um hæl ef þetta gerist. Einnig að leitað verði allra leiða til að forðast að fólk sé vistað allsnakið í klefum ef það er metið í sjálfsvígs- eða sjálfsskaðahættu. Þá þarf að huga að ýmsum aðbúnaði í klefunum og tæknilegum atriðum sem og að byrgja ekki sýn út úr klefunum eins og sjá mátti í heimsókninni að hafði verið gert.
Í skýrslunni er enn og aftur vikið að heilbrigðisþjónustu þeirra sem vistaðir eru í fangageymslum og fyrri tilmæli þar að lútandi ítrekuð, meðal annars um að tryggja fólki nauðsynlega geðheilbrigðisþjónustu. Bent er á að um kerfislægt vandamál sé að ræða sem ekki geti eingöngu verið á ábyrgð lögreglu heldur krefjist samráðs og samvinnu fleiri stjórnvalda. Þar á meðal Landspítala en einnig ráðuneyta dómsmála og heilbrigðismála.
Tilmælum er beint til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að taka eftirlit innan embættisins til endurskoðunar hvað snertir starfsemi fangageymslunnar við Hverfisgötu. Stjórnendum þurfi að berast nauðsynlegar upplýsingar og vera nægilega ,,meðvitaðir um starfsemina til að geta brugðist við kerfisbundnum ágöllum á henni eða einstökum atvikum sem þar kunna að koma upp.
Skýrsla umboðsmanns um fangageymsluna á lögreglustöðinni við Hverfisgötu
Tengdar fréttir
Tilmæli og ábendingar vegna fangageymslu lögreglunnar við Hverfisgötu áréttuð
Eftirlit að nóttu til í fangageymslu lögreglu