Stjórnsýslulögum var ekki fylgt við meðferð matvælaráðuneytisins á umsókn um leyfi til hvalveiða.
Kvartað var yfir málsmeðferð matvælaráðuneytisins í kjölfar umsóknar um leyfi til veiða á langreyðum og að ráðherra hefði ekki verið heimilt að tímabinda leyfið við eitt ár. Umboðsmaður benti á að ráðherra hefði ákveðið svigrúm en gæta yrði meðalhófs. Samkvæmt minnisblaði sem lá fyrir í ráðuneytinu var hægt að fara tvær leiðir þegar gildistími leyfisins var ákveðinn. Annars vegar að gefa út leyfi vegna 2024 til 2025 en hins vegar að tímabinda leyfið við árið 2024. Seinni leiðin var farin.
Umboðsmaður taldi að ákvörðun ráðuneytisins hefði hvorki verið reist á fullnægjandi heildstæðu mati né meðalhófs gætt. Sú breyting að takmarka gildistíma leyfisins við árið 2024 yrði að teljast íþyngjandi miðað við fyrri framkvæmd. Þá hefði ráðuneytið átt að gæta betur að málshraðareglu stjórnsýslulaga með tilliti til þess hve langur tími leið frá því að umsókn barst um leyfið þar til óskað var eftir frekari gögnum og upplýsingum frá þeim sem sótti um leyfið. Ennfremur hefði dregist of lengi að óska eftir lögbundinni umsögn Hafrannsóknastofnunar.
Álit umboðsmanns í máli nr. 12872/2024