Umboðsmanni hafa ekki borist fleiri kvartanir á einu almanaksári en í fyrra þegar þær voru 596 sem er fjölgun um 12,5% milli ára. Árið 2024 voru kvartanirnar 530 og höfðu, þar til 2025, flestar verið 570 en það var árið 2021. Undanfarin fimm ár hefur meðalfjöldi kvartana verið 554.
Flestar kvartanir bárust í september eða 63 og 61 í desember. Ólíkt fyrri árum, þar sem fæstar kvartanir hafa jafnan borist yfir hásumarið, komu 57 í júlí en í sama mánuði árið 2024 voru þær 30.
Eins og jafnan er stærsti málaflokkur ársins kvartanir vegna tafa á afgreiðslu mála eða erinda af hálfu stjórnvalda. Af þeim meiði voru 82 kvartanir eða tæplega14% heildarinnar sem er lækkun um fjögur prósentustig milli ára. Skattar og gjöld standa fyrir rúmlega 7% eða 44 kvörtunum og fækkar þeim líka um tæp fjögur prósentustig. Erlendir ríkisborgarar eru þriðji umfangsmesti málaflokkurinn þar sem 41 kvörtun barst sem nemur tæplega 7% og vex úr tæpum 5% árið áður.

Frumkvæðismál
Fjöldi frumkvæðismála var áþekkur milli ára. Fimmtán mál voru tekin til athugunar að eigin frumkvæði á síðasta ári og 16 slíkum málum lokið. Árið 2024 hófust 13 frumkvæðismál og 17 lauk.
Eftirlit með aðstæðum frelsissviptra (OPAT-eftirlit)
Farið var í fimm heimsóknir vegna OPCAT-eftirlits umboðsmanns þar sem fylgst er með aðstæðum þeirra sem eru frelsissviptir. Á liðnu ári var farið í fangelsið á Hólmsheiði, fangageymslur á Hverfisgötu í tvígang, á lokaðar deildir á geðsviði Landspítala á Kleppi og til lögreglustjórans á Suðurnesjum. Í þeim tveimur síðastnefndu var verið að fylgja eftir fyrri skýrslum umboðsmanns og kanna hvernig brugðist hefði verið við tilmælum og ábendingum í þeim.
Gefnar voru út fjórar skýrslur um OPCAT-heimsóknir þar sem fjallað er um aðstæður og aðbúnað frelsissviptra: Neyðarvistun barna á lögreglustöðinni Flatahrauni, Fangageymslur í Borgarnesi og á Akranesi og tvær sem bera heitið Fangageymslan á Hverfisgötu.