Umboðsmaður hefur óskað eftir upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu um tafir við afgreiðslu mála hjá Útlendingastofnun sem stafa af áreiðanleikarannsóknum sem lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur með höndum.
Annars vegar er óskað upplýsinga um hve langan tíma slíkar rannsóknir taki að meðaltali og hins vegar er spurt hvort ráðuneytið hafi gripið til einhverra aðgerða í tilefni af töfunum og þá hvaða.
Bréf umboðsmanns til dómsmálaráðherra