Á meðan á utankjörfundaratkvæðagreiðslu stóð fyrr í mánuðinum fékk umboðsmaður ábendingu um að aðgengi að atkvæðagreiðslunni hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu væri ekki sem skyldi. Var kjörstaðurinn heimsóttur og rætt við sýslumann.
Í framhaldi af því óskaði umboðsmaður eftir afstöðu sýslumanns til þess hvort aðgengi væri fullnægjandi, m.a. með hliðsjón af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Jafnframt hvort gripið hefði verið til einhverra aðgerða og þá hverra og ennfremur hvort tekið yrði mið af þessu við síðari utankjörfundaratkvæðagreiðslur.
Bréf umboðsmanns til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu