Umboðsmaður hefur sent ríkissaksóknara erindi og óskað upplýsinga um hvað líði endurskoðun fyrirmæla ríkissaksóknara um aðgang að gögnum sakamála sem er lokið.
Í febrúar 2024 lauk umboðsmaður frumkvæðisathugun sinni á fyrirmælunum með ábendingum til ríkissaksóknara. Í maí sama ár upplýsti ríkissaksóknari að fyrirmælin hefðu verið tekin til endurskoðunar en drög að nýjum fyrirmælum væru enn til vinnslu og yrðu send umboðsmanni um leið og þau lægju fyrir.
Þar sem hvorki hafa borist upplýsingar um að endurskoðuninni sé lokið né um stöðu þeirrar vinnu sem lýst var í svarinu er óskað eftir þeim. Ef þessari vinnu er enn ekki lokið er óskað upplýsinga um ástæðu tafanna og það hvort ríkissaksóknara sé kunnugt um að beiðnir um aðgang að gögnum sakamála sem er lokið hafi tafist vegna þessa.
Bréf umboðsmanns til ríkissaksóknara
Tengd frétt
https://umbodsmadur.is/frettir/nanar/9453/adgangur-ad-gognum-sakamala-sem-er-lokid