07. október 2026

Athugun lokið á aðgengi að utankjörfundaratkvæðagreiðslu

Í ljósi aðgerða og úrbóta sem sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu greip til í tengslum við aðgengi að utankjörfundaratkvæðagreiðslu hefur umboðsmaður lokið athugun sinni á málinu.

Umboðsmaður átti samskipti við sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu vegna aðgengis fatlaðs fólks að utankjörfundaratkvæðagreiðslu í húsnæði sýslumanns, bæði vegna sveitarstjórnarkosninga í maí og þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst. Í aðdraganda þeirrar síðarnefndu greindi sýslumaður frá því að gripið hefði verið til aðgerða þannig að aðgengi væri að öllu leyti í samræmi við kröfur byggingarreglugerðar. Ekki var því tilefni til að halda athuguninni áfram. Umboðsmaður áréttaði þó nauðsyn þess að við útfærslu verkefna stjórnsýslunnar væri ávallt tekið mið af ólíkum þörfum, ekki síst fatlaðs fólks.

 

  

Mál nr. F6/2026