Umboðsmaður hefur óskað eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun um þann tíma sem meðferð ýmiss konar umsókna tekur hjá stofnuninni.
Meðal annars er Útlendingastofnun spurð um þær upplýsingar um málshraða sem birtast á vefsvæði hennar, þar með talið hvort þær nái aðeins til samþykktra umsókna og þá hvort slíkar upplýsingar séu til þess fallnar að veita raunsanna mynd af málsmeðferðartíma. Þá er óskað upplýsinga um hversu langt er frá því að umsóknir sem lengst hafi verið til meðferðar bárust stofnuninni og um verklag vegna tilkynninga um fyrirsjáanlegar tafir. Enn fremur biður umboðsmaður Útlendingastofnun um að lýsa afstöðu sinni til þess í hvaða horfi málshraði sé hjá stofnuninni og að veita upplýsingar um mögulegar aðgerðir til úrbóta.
Bréf umboðsmanns til Útlendingastofnunar