Kvartað var yfir nauðungarvistun og þvingaðri lyfjagjöf á sjúkrastofnun.
Umboðsmaður benti á að í lögræðislögum er gert ráð fyrir að mál sem lúta að þeim atriðum sem kvartað var yfir skuli sæta sérstakri meðferð fyrir dómstólum. Þar af leiðandi væru ekki skilyrði til þess að taka kvörtunina til meðferðar.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 18. febrúar 2026.