A kvartaði yfir ákvörðun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um að erindi hans til stofnunarinnar uppfyllti ekki skilyrði til þess að vera tekið til meðferðar. Laut erindið að ákvörðun barnaverndarþjónustu X um að hefja ekki könnun barnaverndarmáls í tilefni af tilkynningu um að sonur A hefði verið beittur andlegu ofbeldi af hálfu móður sinnar. Var af hálfu barnaverndarþjónustunnar vísað til þess að mál væri á þeim tíma rekið fyrir dómstólum þar sem skorið yrði úr um forsjá barnsins.
Athugun umboðsmanns var afmörkuð við þá afstöðu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála að forsendur barnaverndarþjónustunnar teldust réttlætanlegar og að meðferð hennar á tilkynningunni hefði augljóslega ekki falið í sér ámælisverða háttsemi.
Umboðsmaður vísaði til þess að bókun barnaverndarþjónustunnar á fundi hennar, þar sem tilkynningin hefði verið til meðferðar, bæri ekki með sér að hafa verið metin með þeim hætti sem barnaverndarlög gerðu ráð fyrir, heldur væri þar einungis vísað til þess að ekki væri talin ástæða til að hefja könnun barnaverndarmáls þar sem mál væri á þeim tíma rekið fyrir dómstólum þar sem skorið yrði úr um forsjá barnsins. Gat umboðsmaður ekki fallist á að það sjónarmið, eitt og sér og án frekara samhengis, gæti talist málefnalegt við slíkt mat. Fékk hún því ekki séð að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hefði, án frekari upplýsinga frá barnaverndarþjónustu X, haft nægar forsendur til að slá því föstu að meðferð barnaverndarþjónustunnar á tilkynningunni hefði augljóslega ekki falið í sér ámælisverða háttsemi, líkt og byggt var á í skýringum stofnunarinnar til umboðsmanns. Þar sem það hefði ekki verið gert var niðurstaða umboðsmanns að ákvörðun stofnunarinnar hefði ekki verið reist á fullnægjandi grundvelli með tilliti til rannsóknar málsins.
Umboðsmaður beindi því til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála að taka erindi A til nýrrar meðferðar, kæmi fram ósk um það frá honum, og leysa þá úr málinu í samræmi við þau sjónarmið sem rakin væru í álitinu. Þá var því jafnframt beint til stofnunarinnar að taka framvegis mið af þeim sjónarmiðum sem þar væru rakin við úrlausn sambærilegra mála.
Umboðsmaður lauk málinu með áliti 10. september 2026.