A kvartaði yfir töfum á meðferð Útlendingastofnunar á beiðni um endurupptöku máls.
Umboðsmaður taldi, með vísan til þess að beiðnin hafði verið til meðferðar í rúma þrjá mánuði, ekki nægilegt tilefni til frekari athugunar á kvörtuninni.
Umboðsmaður upplýsti A um að málshraði við meðferð mála hjá Útlendingastofnun hefði verið tekinn til almennrar athugunar að eigin frumkvæði.
Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 20. október 2026.