12. október 2021

Spurt um aðstæður barna sem eru aðskilin frá samnemendum sínum

Umboðsmaður óskar á nýjan leik eftir upplýsingum, frá bæði mennta- og menningarmálaráðuneytinu og nokkrum skólaskrifstofum, um aðskilnað barna frá samnemendum sínum og vistun þeirra í sérstökum rýmum grunnskóla.

Í fyrra óskaði umboðsmaður eftir sambærilegum upplýsingum. Í kjölfar þeirra svara sem honum bárust var ákveðið að aðhafast ekki frekar að sinni. Síðan hafa honum hins vegar borist ábendingar frá foreldrum um að börn hafi verið lokuð inni í sérstökum rýmum, jafnvel einsömul. Það ásamt nýlegri opinberri umræðu um að dæmi séu um að börn séu lokuð inni í ákveðnum skólum og verklag í tengslum við hana er kveikjan að því að hreyfa við málinu á ný.

Umboðsmaður spyr í þessu sambandi hvort borist hafi ábendingar, kvartanir eða kærur vegna slíkra mála frá síðasta svari. Hvort vart hafi orðið við þessa framkvæmd í skólum og hvort vitneskja sé um að í einhverjum grunnskólum sé fyrir hendi almennt skráð verklag um hana. Óskað er eftir svörum frá stjórnvöldum fyrir 1. nóvember nk. Er tekið sérstaklega fram í bréfunum að berist upplýsingar sem gefi tilefni til, kunni að verða farið í vettvangsheimsóknir í tiltekna skóla.

Bæði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og umboðsmanni barna er sent afrit af bréfunum til upplýsingar.

 

Bréf umboðsmanns til mennta- og menningarmálaráðuneytisins

Bréf umboðsmanns til skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar

Bréf umboðsmanns til mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar

Bréf umboðsmanns til fræðslu- og frístundasviðs Mosfellsbæjar

Bréf umboðsmanns til fræðslusviðs Akureyrarbæjar

 

 

Tengd frétt

Spurt um aðstæður grunnskólanema vegna dæma um veru þeirra í gluggalausu rými