Umboðsmaður hefur óskað eftir upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu um upplýsingagjöf og leiðbeiningar til þeirra sem þurfa, að frumkvæði íslenskra heilbrigðisstofnana, að sækja heilbrigðisþjónustu utan landsteinanna og eftir atvikum aðstandenda þeirra.
Fyrirspurnin er tilkomin vegna kvörtunar yfir stjórnsýslu Sjúkratrygginga Íslands og viðbrögðum heilbrigðisráðuneytis við athugasemdum þar að lútandi. Óskar umboðsmaður meðal annars eftir upplýsingum um hvaða leiðbeiningar sjúklingar og aðstandendur þeirra fá um réttindi sín vegna heilbrigðisþjónustu erlendis. Í framhaldinu verður metið hvort ástæða þyki til að taka málefnið til frekari athugunar.
Bréf umboðsmanns til heilbrigðisráðherra
Tengt mál
471/2025